Réttindi í veikindum

Ef einstaklingur á vinnumarkaði verður óvinnufær vegna sjúkdóms eða slyss á viðkomandi rétt á veikindalaunum frá vinnuveitanda í tiltekinn tíma. Lög og kjarasamningar kveða á um útfærslu og fjölda veikindadaga og fer það einnig eftir starfsaldri og vinnuhlutfalli.

 Ef starfsmaður er frá vinnu vegna sjúkdóms eða slyss lengur en réttur hans til launa nær, getur hann sótt um dagpeninga úr sjúkrasjóði síns stéttarfélags hafi hann greitt til stéttarfélags (Ath. Réttur til sjúkradagpeninga frá stéttarfélagi myndast oftast eftir 6 mánaða greiðslur til stéttarfélags).

Þeir sem ekki hafa launatekjur í veikindum geta átt rétt á sjúkradagpeningum frá Sjúkratryggingum Íslands og einnig samhliða dagpeningum úr sjúkrasjóði síns stéttarfélags. Sjúkradagpeningar – framfærsla í veikindum | Ísland.is (island.is)

Endurhæfingarlífeyrir

Ef starfsmaður er frá vinnu vegna sjúkdóms eða slyss lengur en réttur hans til launa nær og sjúkrasjóði stéttarfélags, getur hann sótt um endurhæfingarlífeyri til Tryggingastofnunar. Einnig getur starfsmaður sem ekki á rétt á veikindalaunum hjá atvinnurekanda, er sjálfstætt starfandi og hefur ekki greitt til stéttarfélags sótt um endurhæfingarlífeyri til Tryggingastofnunnar.

Skilyrði fyrir Endurhæfingarlífeyrir | Ísland.is (island.is) eru:

  • Aldur: 18 – 67 ára
  • Hafa átt lögheimili á Íslandi í samfellt 12 mánuði
  • Vera í virkri starfsendurhæfingu undir handleiðslu fagaðila
  • Hafa fullnýtt önnur réttindi; Veikindaréttur vinnuveitanda og sjúkrasjóður stéttarfélags.

Örorka

Þau sem eru á aldrinum 18 til 67 ára geta sótt um að fara í örorkumat hjá Tryggingastofnun, þar sem metin er færni eftir sjúkdóma, slys eða fötlun. Skilyrði er að endurhæfing sé fullreynd áður en örorka er metin.

Niðurstaða örorkumatsins getur veitt rétt á örorkustyrk eða örorkulífeyri.

Bifreiðastyrkir

Fólk með hreyfihömlun sem þarf bíl til að stunda vinnu, skóla, reglubundna endurhæfingu eða sækja heilbrigðisþjónustu getur sótt um styrki og uppbætur til að kaupa eða reka bíl.

Heimilt er að greiða hreyfihömluðum lífeyrisþega uppbót til að mæta kostnaði við rekstur bifreiðar. Uppbótin er greidd mánaðarlega með öðrum lífeyrisgreiðslum. Meta þarf hreyfihömlun umsækjanda út frá hreyfihömlunarvottorði frá lækni. Fjárhæðin er 23.293 kr. á mánuði.

Einnig er hægt að sækja um bifreiðastyrk vegna kaupa á bíl, lán til kaupa á bíl sem og vegna breytinga á bifreiðum. Sjá nánar á Bifreiðastyrkir fyrir hreyfihamlað fólk, blinda og lífeyrisþega | Ísland.is (island.is)

Allar umsóknir til Tryggingastofnunnar eru inn á Mínum síðum TR  Tryggingastofnun (island.is)

Hjálpartæki

Allar umsóknir um hjálpartæki eru afgreiddar hjá Sjúkratryggingum Íslands. Umsóknir eru sendar rafrænt af heilbrigðisstarfsmanni og þarf að innhalda rökstuðning á þörf fyrir hjálpartæki, upplýsingar úr sjúkraskrá viðkomandi og við fyrstu umsókn þarf umsögn og/að færnimat heilbrigðisstarfsmanns. Nánar um hjálpartæki Tryggingastofnun (island.is)